148 fm | 4 herbergja | Verð 109.8 milj. | Áhv. 0
ÚTLISTUN
Skeifan fasteignamiðlun kynnir: Glæsileg og vel skipulögð neðri sérhæð 122,3 fm ásamt 26,3 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað. Íbúðin með bílskúr er alls 148,6 fm.
Íbúðin er nánast öll endurnýjuð. Skipt var um gólfefni, innréttingar, hurðir og fleira fyrir nokkrum árum. Stórglæsilegt útsýni.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og þvottahús.
Nánari lýsing:Forstofa/anddyri með fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa/ borðstofa er rúmgóð með parketi, útgengt úr stofu út á rúmgóðar svalir með glæsilegu útsýni.
Gólfhiti er við svalahurð í staðinn fyrir ofn sem búið er að fjarlægja.
Eldhús með eyju, hvít innrétting og nýleg tæki, tveir ofnar, steinborðplötur, opið inn í stofu úr eldhúsi, parket á gólfum. Uppþvottavél og ísskápur fylgir með.
Rúmgott hjónaherbergi með skáp, parket á gólfi.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergið er rúmgott með innréttingu og rúmgóðri sturtu. Flísalagt í hólf og gólf. Opnanlegur gluggi á baðherbergi.
Sér þvottahús er innan íbúðar og er það rúmgott með innréttingum og opnanlegum glugga.
Bílskúrinn er rúmgóður með geymslurými, skráður 26,3 fm, stendur fyrir framan húsið, flísar á gólfi, vatn og hiti.
Snjóbræðsla er í gönguleið að inngangi íbúðar sem er vestan megin við húsið. Hægt er að keyra upp að inngangi íbúðar.
Allt almennt viðhald á húsinu hefur verið gott í gegnum tíðina. Húsið var málað fyrir 2-3 árum.
Virkilega góð staðseting í suðurhlíðum Kópavogs. Kópavogsdalurinn í seilingarfjarlægð. Fallegar gönguleiðir í nágrenninu og mikil náttúra. Stutt í skóla, leikskóla og alla almenna þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir
Jón Þór í síma 896-1133.
[email protected]Eysteinn Sigurðsson í síma 896-6000.
[email protected]
SKEIFAN SKILAR ÁRANGRI - SÍÐAN 1985
Skeifan fasteignasala | Suðurlandsbraut 46 | 108 Reykjavík | Opið frá kl. 9-17 mánudaga til föstudaga | www.skeifan.is
Skeifan á Facebook