110 fm | 4 herbergja | Verð 78.3 milj. | Áhv. 0
ÚTLISTUN
Skeifan fasteignasala kynnir:
Helluvað 13, 110.2 fm. Falleg og vel skipulögð 4 herbergja endaíbúð á 3. hæð, merkt 03-08 í góðu vel staðsettu lyftuhúsi. Mjög fallegt gott útsýni. Stæði í bílageymslu fylgir. Góðar suðvestur svalir. Eingöngu tvær íbúðir á stigapalli.
Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 228-2911, nánar tiltekið eign merkt 03-08. Ibúðin er skráð 100,2 fm og sérgeymsla í sameign merkt 00-33 er skráð 10,0 fm birt heildarstærð 110.2 fm. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu merkt 03B02 Suðvestur svalir eru út frá stofu og eru skráðar 7,8 fm. Nýlegt parket á íbúðinni.
Nánari lýsing:
Forstofu með góðum fataskáp, flísar á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, nýlega spraulökkuð, parket á gólfi. Granít borðplötur. Opið inní stofu úr eldhúsi.
Stofa með parketi á gólfi og útgengt út á góðar svalir úr stofu. Svalirnar eru stórar, snúa til suð-vesturs með frábæru útsýni.
Baðherbergi með innréttingu, baðkar og sér sturtuklefi, flísar á veggjum og gólfi.
Rúmgott hjónaherbergi með góðum skáp, parket á gólfi.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi á gólfum.
Þvottahús með innréttingu, flísar gólfi.
Stæði í lokaðri bílageymslu. Búið er að leggja rafmagn fyrir rafhleðslu í bílastæðið, aðstaða í bílakjallara til að þrífa bíla, þar er háþrýstidæla. Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Góð eign á þessum eftirsótta stað
Staðsetningin á Helluvaði er mjög góð m.t.t. fjarlægðar frá skóla. Engin gata í skóla og í göngufæri. Þ.á.m. Fylkir, fimleikar, karate, Parkour, rafdeild, ásamt dansskóla o.fl. í nágreninu. Þá er stutt í fallegar gönguleiðir s.s. við Rauðavatn, Heiðmörk, Elliðaárdalinn og í Víðidal.
Nánari upplýsingar veitir Jón Þór í síma 896-1133 og Eysteinn í síma. 896-6000. [email protected]
SKEIFAN SKILAR ÁRANGRI - SÍÐAN 1985
Skeifan fasteignasala | Suðurlandsbraut 46 | 108 Reykjavík | Opið frá kl. 9-17 mánudaga til föstudaga | www.skeifan.is
Skeifan á Facebook